Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 377/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 377/2022

Miðvikudaginn 2. nóvember 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. júlí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. maí 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 21. janúar 2022 og var umsóknin samþykkt 3. mars sama ár. Þann 3. mars 2022 var kærandi boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem fara ætti fram dagana 9., 11., 18., 21. og 23. mars 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 13. apríl 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust ekki. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. maí 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Skýringar bárust frá kæranda 4. maí og 2. júní 2022 og var mál hennar því tekið til endurumfjöllunar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. júní 2022, var kæranda tilkynnt að skýringar hennar hefðu ekki verið metnar gildar og því væri fyrri ákvörðun staðfest. Þá bárust frekari skýringar frá kæranda 21. og 23. júní 2022 og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2022, var ákvörðun frá 3. maí 2022 staðfest á ný.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. júlí 2022. Með bréfi, dags. 11. ágúst 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð 14. september 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. október 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. október 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að henni hafi verið bent á að kæra niðurstöðu Vinnumálastofnunar um að greiða henni ekki bætur í tvo mánuði vegna þess að hún hafi misskilið fyrirkomulag námskeiðs um jákvæða sálfræði og atvinnuleit. Kærandi hafi allan tímann spurst fyrir, reynt að leita upplýsinga og verið í samskiptum við Vinnumálastofnum. Hún sé búin að taka saman alla söguna er varði málið og það skjal fylgi með kærunni. Þann 3. mars 2022 hafi kærandi fengið póst um námskeið og nokkrar dagsetningar settar upp í þeim pósti. Kærandi hafi tekið því sem svo að hún ætti að mæta á eina af þessum dagsetningum sem hún hafi gert síðasta daginn, eða þann 23. mars. Þá hafi kæranda verið sagt að hún hefði átt að mæta á allar dagsetningarnar. Fleiri þátttakendum á námskeiðinu hafi fundist þetta mjög ruglingslega sett upp og hafi heldur ekki verið alveg vissir með þetta. Kæranda hafi verið sagt að fara heim og fylgjast með þegar næsta námskeið yrði tilkynnt sem hún hafi gert. Kærandi hafi einnig sent póst á undan til Vinnumálastofnunar, eða þann 18. mars og látið vita að hún væri lasin þar sem hún hafi verið komin með Covid einkenni. Kærandi hafi allan tímann haldið að hún ætti að mæta á eina af þessum dagsetningum og hafi því verið alveg róleg að ná því.

Kærandi hafi tekið saman öll samskipti og gögn og sent Vinnumálastofnun til að mótmæla ákvörðuninni sem og hringt í stofnunina. Vinnumálastofnun hunsi það og vitni í póstinn frá 3. mars. Kærandi myndi skilja þessa grimmilegu niðurstöðu ef hún hefði ekkert látið vita, ekki mætt síðasta daginn, ekkert fylgt máli sínu eftir og ekki spurt hvernig hún ætti að skrá sig á námskeið. Kærandi hafi alltaf verið að fylgjast með, látið vita, mætt og hafi alltaf verið að spyrjast fyrir. Kærandi sé mjög virk í sinni atvinnuleit, fylgist vel með, sé alltaf að sækja um og hafi komist langt í nokkrum atvinnuviðtölum.

Kærandi óski því eftir að farið verði yfir mál hennar og að Vinnumálastofnun greiði henni þessa tvo mánuði. Kærandi sé heppin að eiga góða að og því hafi hún getað greitt reikningana og keypt í matinn fyrir sig og börnin. Kærandi sé einstæð móðir og myndi vilja fá afsökunarbeiðni frá þessu fólki hjá Vinnumálastofnun sem hafi tekið þessa ákvörðun, þrátt fyrir öll gögnin sem hún hafi tekið saman og að um mannleg mistök sé að ræða.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 21. janúar 2022. Með erindi, dags. 3. mars 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Kærandi hafi skráð sig á námskeiðið ,,Jákvæð sálfræði og atvinnuleitin“ en umrætt námskeið hafi verið auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Með tölvupósti og sms skilaboðum sem hafi verið send af hálfu Vinnumálastofnunar þann 3. mars 2022 hafi kæranda verið gefnar upplýsingar um að námskeiðið yrði haldið dagana 9. mars kl. 13-16, 11. mars kl. 12-15, 18. mars kl. 12-15, 21. og 23. mars kl. 13-16. Þá hafi athygli kæranda verið vakin á því að mætingarskylda væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar til Vinnumálastofnunar. Að loknu umræddu námskeiði hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar frá námskeiðishaldara að mæting kæranda hefði verið ófullnægjandi, nánar tiltekið að kærandi hafi aldrei mætt. Þá höfðu engin forföll verið boðuð til Vinnumálastofnunar. Í kjölfarið hafi kæranda með erindi, dags. 13. apríl 2022, verið boðið að skila skriflegum skýringum á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt framangreinda daga á umrætt námskeið. Engar skýringar hafi borist frá kæranda á ófullnægjandi mætingu á boðað námskeið. Með erindi, dags. 3. maí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta væri felldur niður frá og með 3. maí 2022 í tvo mánuði. Framangreind ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Þann 4. maí 2022 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda með skýringum á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt á boðað námskeið. Þann 2. júní 2022 hafi Vinnumálastofnun borist annar tölvupóstur frá kæranda er varðaði fjarveru á boðað námskeið. Kærandi hafi þar greint frá því að hún hafi verið fjarverandi á umræddu námskeiði þar sem hún hafi misskilið fyrirkomulag námskeiðsins og hvaða daga það væri haldið. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun tölvupóst þess efnis að námskeiðið væri sett upp á ruglandi hátt. Engin tölvupóstur þess efnis hafi borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 15. júní 2022, hafi mál kæranda verið tekið til endurumfjöllunar með tilliti til nýrra gagna. Kæranda hafi verið tilkynnt að skýringar hennar vegna fjarveru á umræddu námskeiði hefðu ekki verið metnar gildar og að ákvörðun, dags. 3. maí 2022, væri staðfest. Þann 21. og 23. júní 2022 hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar frá kæranda. Með erindi, dags. 23. júní 2022, hafi fyrri ákvörðun, dags. 3. maí 2022, verið staðfest, þrátt fyrir nýjar skýringar. Þann 27. júní og 4. júlí 2022 hafi frekari skýringar borist frá kæranda vegna fjarverunnar þar sem kærandi vísi til þess að hafa tilkynnt um veikindi. Engin skráning sé í kerfum Vinnumálastofnunar um veikindi kæranda né nokkur tilkynning þess efnis. Vinnumálastofnun bendi á að rík skylda hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna stofnuninni um allar þær breytingar sem verða á vinnufærni viðkomandi, þar á meðal um tilfallandi veikindi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í a-lið 1. mgr. 13. gr. sé kveðið á um það skilyrði að atvinnuleitandi skuli vera í virkri atvinnuleit. Samkvæmt h-lið 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. sömu greinar, þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi í skýringum sínum, bæði til Vinnumálastofnunar og kæru til úrskurðarnefndarinnar, greint frá því að hún hafi látið kennara námskeiðsins vita þá daga sem hún hafi forfallast. Ljóst sé af ákvæði 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að atvinnuleitandi beri tilkynningarskyldu gagnvart Vinnumálastofnun. Það sé forsenda þess að stofnunin geti sinnt eftirlitshlutverki sínu.

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé hafnað. Í 1. mgr. 58. gr. segi orðrétt:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi skráð sig á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi, bæði með tölvupósti og smáskilaboðum þann 3. mars 2022, verið tilkynnt að mætingarskylda væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekkert mætt á boðað námskeið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að gera verði þær kröfur til atvinnuleitenda að mæting þeirra á þau vinnumarkaðsúrræði sem þeir hafa skráð sig á sé fullnægjandi og hafi stofnunin í því samhengi miðað við að mæting sé 80%. Með vísan til framangreinds hafi mæting kæranda á umrætt námskeið því ekki verið fullnægjandi. Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi verið fjarverandi séu annars vegar þær að hún hafi verið veik og hins vegar að misskilnings hafi gætt er varðaði fyrirkomulag námskeiðsins.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem þeim standi til boða í atvinnuleit sinni. Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi verið fjarverandi á umrætt námskeið séu ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi vísast meðal annars til 2. mgr. 14. gr. laganna en þar segi að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni, þar á meðal um tilfallandi veikindi án ástæðulausrar tafar. Þá sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda þess efnis að fyrirkomulag umrædds námskeiðs hafi verið ruglingslegt geti ekki talist gildar, enda hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og sms skilaboð um fyrirkomulag námskeið þar sem tilgreindar hafi verið dagsetningar námskeiðsins ásamt tímasetningum.

Með vísan til framangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að þær skýringar sem kærandi hafi gefið vegna fjarveru sinnar á umrætt námskeið geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið dagana 9., 11., 18., 21. og 23. mars 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur borið því við að hafa misskilið fyrirkomulag námskeiðsins þannig að hún hafi einungis átt að mæta einn dag. Það hafi hún gert síðasta daginn.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á vinnumarkaðsúrræði sem henni var gert að sækja. Í framangreindri boðun var sérstaklega tekið fram að námskeiðið væri fimm dagar og hvenær það væri kennt. Þá var kærandi hvött til að hafa samband við ráðgjafa Vinnumálastofnunar ef eitthvað væri óljóst eða hún þyrfti frekari upplýsingar. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. maí 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum